laugardagur, mars 08, 2008

Búið að vera mjög mikið að gera í skólanum. Vorum að kynna verkefnið okkar í gær föstudag. Við notuðum video tækni til að kynna verkefnið, þar af leiðandi var mikil vinna lögð í það. Til að mynda var hluti af hópnum að vinna í myndbandinu frá 8 að fimmtudags morgni og alveg fram að kynningu. Þegar ég fór að sofa í gær hafði ég vakað í hart nær 38 tíma. Myndirnar sem fylgja voru teknar þegar við vorum að gera verkefnið. Myndbandið kemur vonandi á bloggið í kvöld.


Arna Dögg og Henrietta

Hlynur og Björn

Hlynurinn

Hlynur og Björn við upptökur

Ég og Hlynur á Carlsberg svæðinu að mynda.

Heyrði í Gústa um helgina, hann sagði mér skemmtilegar fréttir! Finnur (Eyri) var að járna stóðhestinn okkar hann Guðfinn. Finnur ætlaði bara að járna fram lappirnar, en Finnsi var að kjafta við Sigga á Vatni í símann og gleymdi sér e-ð við það og áður en hann vissi af var hann búin að járna þrjár lappir. Ég veit að Siggi á Vatni er mjög hress náungi og það er alveg hægt að gleyma sér þegar spjallað er við hann. En það sem er merkilegt er það að Guðfinnur er aðeins þriggja vetra og Finnsi járnaði hann með símann á öxlinni! Greinilegt að Guðfinnur er með mjög gott geðslag.

Ég frétti einnig að nokkrir bændur úr Dölunum hafi heimsótt Finnsa, þar sáu þeir til Guðfinns þar sem hann athafnaði sig í gerðinu. Þeir voru allir sammála um að yfirlínan væri sterk og í senn afslöppuð, höfuðburðurinn stöðugur svo og takturinn, fasmikill hestur þar á ferð og ekki skemmdi liturinn fyrir.


Finnur með hundinn Skugga að vitja hrossanna

laugardagur, mars 01, 2008

Gunnar Bróðir kíkti til Köben um daginn. Ég og Kristján fórum út á flugvöll og sóttum kappann, strax eftir það var farið út að borða á matsölustaðinn Bankro, góður matur þar. Gunnar kom á þeim tíma sem ég var svikinn um íbúðina, þar af leiðandi gat ég ekki boðið honum gistingu, þannig að það var gist hjá Helgu systir. Sem var mjög gaman langt síðan að við höfum öll hist.

föstudagur, febrúar 29, 2008

Per bauð fjölskyldu, vinafólki og mér í afmælið sitt síðasliðin miðvikudag. Veislan var haldin á matsölustað í Kastrup. Maturinn, þjónustan og allt annað var til fyrirmyndar.


Andri
Sandra


Helga


Vina fólk Helgu og Per

Tók nokkrar myndir í dag, af rýminu sem við hópurinn höfum í skólanum. Gott rými. Myndir fylgja af rýminu og nokkrum úr hópnum. Takið eftir gleraugunum.

Rýmið
Rýmið séð utan frá


Rýmið séð utan frá, glittir í Bjössann

Hlynur




Dýrleif



Björn Ingi





Aðall varð í 3. sæti í flokki 5 vetra stóðhesta á landsmótinu 2004. Hann varð 1. sæti í flokki stóðhesta 6 vetra og eldri á fjórðungsmótinu á Kaldármelum 2005. Afkvæmin lofa mjög góðu, þau virðast erfa gott geðslag og fallegar hreyfingar. Á unghrossasýningu í Reiðhöllinni á Blönduósi 2006, stóð efstur í flokki 3 vetra ungfola Aðalssonur og vakti lukku.

Ég var heppinn að kynnast Ollu í Nýjabæ, hún er góð og afar dugleg kona. Hef hjálpað henni lítisháttar en það er annað mál. Ástæðan fyrir því að ég nefni hana er sú að hestur vikunnar er í hennar eign, hann Aðall frá Nýjabæ. Vonandi tekur Aðall þátt í fimm gangi á LM, að öllum líkindum er hann eftir að standa sig vel þar.
Töltandi Aðall


Aðall hress að sinna merum


sunnudagur, febrúar 24, 2008

Fyrir um tveimur vikum fór ég ásamt Brynju, Hlyn og Eddu á þorrablótið í Arhus, þar sem Alda beið spennt eftir okkur. Fyrst að við vorum komin til Arhus þá ákvað við Brynja að skella okkur til Odense, á heimsmeistaramótið í Tölti 2008.







fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Helga systir, Per, Sandra og Andri eru að fara að flytja í þetta hús, um miðjan mars mánuð.













fimmtudagur, janúar 31, 2008

Tvær myndir sem ég málaði. Myndin er tekin af bókahillu. Málverkin eru í eigu Sonju Lindal http://sonjalindal.bloggar.is/


Danski fáninn notaður sem fjölbýlishús.



Hvað táknar rauði liturinn? Hlakka til þegar hvíti liturinn táknar e-ð!

Hvít möl notuð milli húsa, hús úr rauðu stáli.



þriðjudagur, janúar 29, 2008

Hafði lítið að gera í kvöld þannig að ég fór að fikta í nokkrum forritum og þetta varð útkoman. Hannaði hús.
________________________________________________________________
Grunnhugmynd, skyssa af grunnformum, þríhyrning, ferhyrning og hring.

Upplýsingar.

Bílskúr, tengi-bygging og Stofa. Norður hlið.


Hús, tengi-bygging og bílskúr.


Stofa, tengi-bygging og Hús. Suður hlið.




Útlit 1. Hús í náttúru.




Útlit 2. Hús í náttúru. Haust.







Útlit 3. Hús í náttúru/búsetu landslag.




Á síðasta föstudag, eftir pófa og verkefna törn, fór ég ásamt Kristjáni og Lilju út að borða og þar á eftir var kíkt á Retró í eina kollu. Svo tókum við Kristján smá túrista á þetta og fórum rúnt um bæinn í hjóla “taxa”, svaka stuð. Myndin er af okkur í hjóla “taxanum”.


miðvikudagur, janúar 23, 2008

Hér koma skemmtilegar myndir frá Jólunum, heima hjá mömmu og pabba. Ísar Hólm að fá ís hjá ömmu sinni. Eins og sést á myndunum, finnst honum ís frekar góður!











Hestur vikunnar að þessu sinni er Glymur frá Innri-Skeljabrekku. Hann hefur meðal annars verið heimsmethafi með einkunnina 8,67 fyrir hæfileika aðeins 4 vetra gamall, sem er hæsti hæfileika dómur frá upphafi sem gefinn hefur verið fyrir fjögra vetra gamlan stóðhest. Hlakka til að sjá hann á LM 2008. Á myndunum er Glymur ásamt eigendum sínum þeim Finnsa, Lenu, Gunnari og Aggi Magg, sem er knapi hestsins.




Próf í Woodland design and management afstaðið, sem betur fer náði ég því! Skóg- og tré fræði er ekki alveg mín sterkasta hlið! Fékk líka góða hjálp frá Kíkí og Ísari ;o)

laugardagur, janúar 19, 2008

Er búin að vera að læra undir munnlegt próf í áfanganum Woodland design..... Hef vera að taka páfagaukinn á þetta, vona að það virki. Annars allt gott, veðrið gott, allir hressir og Áfram Ísland, djók. Set mynd af kíkí fuglinum hans Ísars, væri gott að hafa Kíkí til að hjálpa sér við lærdóminn! Læt eina mynd fylgja af eiganda Kíkí, honum Ísari Hólm.





Hér kemur sýnishorn af forsíðu sem ég gerði fyrir lokaverkefni í Woodland áfanganum. Dauði gaurinn var ekki með á forsíðunni, en ég leifi honum að fylgja með í þetta skiptið.


fimmtudagur, janúar 17, 2008

Íslenskir kirkjugarðar, verkefni sem við höfum verið að fást við síðastur daga. Tókum á það ráð að læra heima á Lobaerdy, það er ekki gott að vera endalaust upp í skóla, enda of mikið af dönum þar!. Verkefnið hefur gengið vel og ég held að niðurstaða verkefnis sé hvað kirkjugarðurinn í Grafarvogi Gufunes kirkjugarður er ekki sá best skipulagði!. Allaveg hér koma nokkrar myndir af hópnum. Takið eftir hvað Biggi er góður á “músinni”. Jamm hópurinn saman stendur af Belind, Bigga, Jóni og kallinn.