laugardagur, mars 08, 2008

Búið að vera mjög mikið að gera í skólanum. Vorum að kynna verkefnið okkar í gær föstudag. Við notuðum video tækni til að kynna verkefnið, þar af leiðandi var mikil vinna lögð í það. Til að mynda var hluti af hópnum að vinna í myndbandinu frá 8 að fimmtudags morgni og alveg fram að kynningu. Þegar ég fór að sofa í gær hafði ég vakað í hart nær 38 tíma. Myndirnar sem fylgja voru teknar þegar við vorum að gera verkefnið. Myndbandið kemur vonandi á bloggið í kvöld.


Arna Dögg og Henrietta

Hlynur og Björn

Hlynurinn

Hlynur og Björn við upptökur

Ég og Hlynur á Carlsberg svæðinu að mynda.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já einmitt þarna sést Arna Dögg vinna í tölvunni sinni og sennilega tala við mig á msn-inu því við vorum eitthvað að spjalla saman meðan hún var samt sem áður mjög upptekin hmmm. Gaman að sjá myndir af ykkur. Kveðja María Guðbjörg.