laugardagur, október 25, 2008

Var að skila loka verkefni ásamt hópnum mínum í áfanganum Digital terrain modeling (Autocad Civil 3d). Eigum reyndar eftir að kynna verkefnið, það verður gert á þriðjudaginn. Ég er ánægður með verkefnið, lenti líka í góðum hóp í þetta skiptið, sem betur fer. Ætla að setja verkefnið inn á síðuna í næstu viku. Annars er lítið annað að frétta, annað en að skólinn gengur. Sakna aðeins að vera ekki í rafmagnsleysinu og öllum snjónum fyrir vestan.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til lukku með að vera búin með verkefni, það er alltaf góð tilfinning! Ég segi það með þér hefði alveg verið til í smá rok og rafmagnsleysi (kannski í svona klukkutíma, og svo aftur í borgina)!! Hvenær kemurðu til landsins?

kv Rakel

sigurdur sagði...

Takk! Gaurinn kemur eftir viku. Hlakka til að hitta ykkur og þá sérstaklega hann Ísar. Vonandi fæ ég að upplifa rafmagnsleysi og Snjóskefla.

Nafnlaus sagði...

Þú færð nú ekki að upplifa það nema þú ætlir til Súðavíkur ;)

sigurdur sagði...

væri sko alveg til í að vera í Súðavík.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,

Hvenær kemurðu á laugardaginn?

kv Rakel