miðvikudagur, júní 25, 2008

Heimferðin að verða að veruleika, lendi um kl 23:00 annað kvöld, alltsvo fimmtudaginn 26 júní. Hlakka mikið til að hitta alla. P.s. ef þið hafið tillögur um fallegt nafn á litla svarta hryssu þá endilega skrifið comment.

5 ummæli:

Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Jón Jón!

Nafnlaus sagði...

Held að það séu ekki margar hryssur sem heita Júní, svo hvers vegna ekki?
Hlakka til að hitta þig er þú kemur heim í blíðuna.
Kveðja úr blíðunni á Skaganum

Nafnlaus sagði...

Ætla ekki að ákveða nafn fyrr en ég sé litlu hryssuna... En eins og staðan er í dag er ég mikið að spá í að skýra hana Dimma.

Hlynur Gauti Sigurðsson sagði...

eða Tinna,
eða Ella Fitsgerald
eða Rökkva
eða Myrkva
eða Ambátt
eða Amaba
eða Abraka og sú næsta héti Dabra
eða Halle Berry
eða Corvus corax (krummi á latínu)
eða Svartafjöður
eða Gjóska
eða Sót
eða Brynja
æ, datt barra í hug að senda þér smá grín.

Rósa sagði...

En Blökk eða Gjá? Er voða hrifin af eins atkvæðis nöfnum.